Sumarafleysingastörf

Spennandi vinnustaður í alþjóðlegu umhverfi

Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í dagvinnu sem og vaktavinnu í verslun fyrirtækisins, bæði hluta- og heilsdagsstörf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní n.k.

Störfin felast í afgreiðslu og áfyllingum í verslun. Við leitum að reyklausum, snyrtilegum og þjónustuliprum einstaklingum.

Einnig leitum við að starfsfólki á lager en unnið er í dagvinnu og er meirapróf æskilegt.

Hæfniskröfur:

  • Góð þjónustulund
  • Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni
  • Sveiganleiki
  • Aldurstakmark 20 ár

Umsóknum skal skilað rafrænt inn á heimasíðu Fríhafnarinnar fyrir mánudaginn 22. mars n.k.

Upplýsingar um störfin veitir Sóley Ragnarsdóttir, starfsmannaþjónusta.

ATVINNUUMSÓKN

asd