Það kom í hlut þeirra feðga, Jóns Þórs Sævarssonar og Bjarna Þórs Jónssonar, að fara til Helsinki
og fylgjast með úrslitaleiknum á EM 2009. Um veglegan vinning var að ræða því auk þess að fá flug
og gistingu fengu þeir feðgar 2 VIP miða á úrslitaleikinn þar sem Þjóðverjar unnu Englendinga í miklum markaleik
en leikurinn endaði 6-2. Að sögn Jóns og Bjarna heppnaðist ferðin í alla staði vel.









