Í Fríhöfninni er að finna mikið úrval af góðri merkjavöru. Vörur og þjónusta í verslunum eru samkeppnishæfar við aðrar flugstöðvar í Evrópu og verð er allt að 50% undir því sem gerist í verslunum í Reykjavík.
Ísland er eitt af fáum ríkjum í Vestur-Evrópu sem getur selt vörur og þjónustu á fríhafnarverði til allra farþega sem yfirgefa landið eða koma til þess.
Komufarþegar ættu að fara beint niður í komusalinn, en ólíkt því sem gerist á flugvöllum erlendis er hægt að kaupa vörur sem eru undanþegnar virðiskaukaskatti og aðflutningsgjöldum (tax-and duty-free) við komu.




