Saga
Á árunum 1951-1957 var mikil aukning á flugi um Keflavíkurflugvöll, einkum þó árið 1956. Þann 23.maí 1958 voru samþykkt á Alþingi lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja áfengi, tóbak og fleira á Keflavíkurflugvelli til farþega í framhaldsflugi. Var fríhafnarverslunin opnuð í lítilli flugstöðvarbyggingu 15. október sama ár með það fyrir augum að afla gjaldeyristekna af millilandafarþegum sem ekki höfðu frekari viðdvöl hér á landi. Í ársbyrjun 1970 var svo samþykkt á Alþingi breyting á lögum um tollvörugeymslur, er heimilaði uppsetningu komuverslunar við fríhöfnina og tók sú verslun til starfa í maí sama ár. Í fyrstu var um að ræða mjög lítið fyrirtæki en það hefur vaxið mjög allt frá stofnun og hefur vöxturinn haldist í hendur við aukningu utanlandsferða Íslendinga.
Árið 1987 urðu tímamót í sögu Fríhafnarinnar er Leifsstöð var tekin í notkun. Glæsileg umgjörð var sköpuð í kring um stórbætta þjónustu og aukið vöruval. Ekki stóð á viðtökunum, því sala í Fríhöfninni jókst um meira en helming frá árinu áður.
Fríhöfnin hefur frá upphafi verið í eigu ríkisins, en á síðustu misserum hafa ýmsir þjónustuþættir færst yfir á hendur einkaaðila. Á árinu 1998 fjölgaði verslunum á brottfararsvæðinu þegar ný rými voru tekin í notkun. Fram að þeim tíma voru reknar tvær verslanir, hefðbundin fríhöfn og verslun með íslenskar vörur. Við bættust verslanir með kvenfatnað, íþróttavörur, herrafatnað, gleraugu, úr og skartgripi, og gjafavöru. Auk þess var þjónusta á sviði gjaldeyrisviðskipta aukin, meiriháttar breytingar gerðar á veitingarþjónustu og umsvif aukin.
Við stofnun hlutafélagsins Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. með lögum frá Alþingi í maí árið 2000 var sameinaður rekstur tveggja ríkisstofnanna. Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli sem rak fríhafnarverslunina og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem rak fasteignina.
Sumarið 2002 voru tvær nýjar Fríhafnarverslanir opnaðar í Suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar með það að markmiði að taka vel á móti farþegum sem koma til Íslands frá löndum utan Schengen. Skiptifarþegar geta nú farið beint úr vélinni og inn í verslanir. Í nýju verslunum er lögð áhersla á áfengi, tóbak, snyrtivörur og sælgæti.
Í upphafi árs 2005 varð breyting á rekstrarformi Fríhafnarinnar þar sem ákveðið var að stofna dótturfélag um verslunarrekstur FLE hf. Fríhafnarverslunin var þar með aðskilin rekstri FLE, bæði stjórnunar- og rekstrarlega.
Þann 15. apríl 2005 tók Fríhöfnin ehf. í notkun nýtt vöruhús. Vöruhúsið er staðsett innan frísvæðis á Keflavíkurflugvelli sem auðveldaði alla vörumeðhöndlun til muna frá því sem áður var. Vöruhúsið er útbúið fullkomnu hillu- og tölvukerfi sem tryggir mikið hagræði í lagerhaldi og dreifingu.
Í júní sama ár tók Fríhöfnin ehf. í notkun nýja verslun í komusal flugstöðvarinnar. Verslunin var stækkum um 460 fermetra frá því sem áður var og var nú orðin 1.000 fermetrar að stærð. Hver vöruflokkur fékk aukið rými í stækkaðri verslun og úrval snyrtivara var aukið til muna í sérstakri snyrtivörudeild.
Í mars árið 2007 opnaði Fríhöfnin ehf. nýja og glæsilega verslun fyrir brottfararfarþega á 2. hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Gólfflötur verslunarinnar er 1.150 fermetrar, sem lætur nærri að vera tvöföldun frá því sem var í gömlu Fríhafnarversluninni. Aðstæður til viðskipta og vörukynninga eru til fyrirmyndar í nýrri verslun, vítt er til veggja og mikil áhersla lögð á góða lýsingu í verslunarrýminu.
Stuttu eftir opnun nýrrar verslunar fyrir brottfararfarþega hætti Fríhöfnin ehf. sölu á raftækjum og margmiðlunarvörum en ELKO og Skífan tóku við sölu á þeim vöruflokkum í flugstöðinni.
Þann 10. apríl 2008 var ný komuverslun opnuð á 1.hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Nýja komuverslunin er um 1.500 fermetrar að flatarmáli og hefur verið stækkuð um 1.000 fermetra frá því breytingar á henni hófust 1. júní 2005. Áhersla var lögð á að gera nýja verslun bjarta og skemmtilega með það að markmiði að farþegar geti notið þess að versla tollfrjálsan varning við komuna til landsins. Viðskiptavinir í komuverslun geta keypt raftæki og afþreyingarefni við komuna til landsins en ELKO annast sölu á þeim vöruflokkum í versluninni.
Í dag starfa í Fríhöfninni um 100 manns í fullu starfi og á sumrin bætast við 70 til viðbótar.