Fréttir
-
04.02.2011
Ævintýraleg askja frá Guerlain
Í ævintýralega fallegum umbúðum frá Guerlain leynast sex mismunandi augnskuggar, spegill og bursti. Askjan sjálf er eins og gamaldags sígarettubox sem í þessutilfelli geymir einn rauðbleikan og fimm brúntóna liti á augun.
Brúntóna augnskuggarnir eru allt frá dökkbrúnum, sem smellpassar fyrir kvöldsamkomu yfir í perluhvítan lit sem myndi henta betur að degi til. Þeirra á milli eruþrír millibrún-hvítir tónar. Hiklaust má mæla með því að kunnáttufólk blandi litunum saman. Hægt er að leika af fingrum fram eftir því hvert tilefnið er. Fyrir þau
sem vilja styðja sig við aðstoð fagmanna er að finna ítarlegar blöndunarleiðbeiningar augnskugganna í umbúðunum, allt frá smoky eyes-förðun yfir í dagförðun.
Það kemur einnig vel út að mýkja bleika litinn með þeim hvítperlaða sem er virkilega fallegur en smá glit er í honum. Rauðbleika litinn í miðju boxins má einnignota til þess að fríska örlítið upp á kinnar svona á þessum síðustu og verstu.
Útkoman: guðdómlega falleg askja full af litatónum sem má blanda saman eftir smekk fyrir ótal tilefni. Safn augnskugganna heitir Guerlain Precious Eyeshadowsog er hluti af vorlínu snyrtivörufyrirtækisins.
Tekið af www.pressan.is
Til baka