Fréttir

  • 12.06.2008

    EM 2008 leikur Fríhafnarinnar

    Fríhöfnin bíður upp á leik í brottfararverslun Fríhafnarinnar af tilefni EM 2008. Leikurinn gengur út á það að svara einni spurningu frá EM 2004. Spurningin er „Hver var markahæstur á EM 2004?“

    Af tilefni leiksins var sett upp fótboltaspil þar sem farþegar geta tekið einn leik á meðan aðrir fjölskyldumeðlimir og vinir versla í Fríhöfninni. Einnig er hægt að finna spennandi vörur á tilboði.

    Dregið verður úr réttum svörum þriðjudaginn 1. Júlí 2008. Þrír heppnir þátttakendur verða dregnir út og eru vinningarnir stórglæsilegir.

    1. Gjafabréf fyrir 2 til Evrópu hjá Icelandair að andvirði 62.200 kr.
    2. Gjafabréf fyrir 1 til Evrópu hjá Iceland Express að andvirði 30.000 kr.
    3. 10.000 kr. vöruúttekt hjá Jóa útherja.

    Til baka