Fréttir
-
21.08.2009
EM stelpurnar drógu út vinningshafana í EM-leik Fríhafnarinnar og Icelandair
Stelpurnar í kvennalandsliðinu í knattspyrnu komu við í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn föstudag og drógu út vinninghafa í EM-leik Fríhafnarinnar og Icelandair á leið sinni til þátttöku í lokakeppni Evrópumótsins í Finnlandi. Leikurinn er í samstarfi við KSÍ og Icelandair og hefur verið í gangi í einn mánuð í verslun Fríhafnarinnar og á heimasíðunum www.dutyfree.is og www.emstelpurnar.is.
Aðalvinningur er flug og gisting fyrir tvo og miðar á úrslitaleikinn í Evrópukeppninni og fjórir aukavinningar, flug, gisting og miðar fyrir tvo á leik Ísland - Þýskaland. Mikill áhugi er á EM-leiknum en alls hafa um 4500 manns tekið þátt sem sýnir mikinn áhuga Íslendinga á mótinu. Sjö ára gamall fótboltaunnandi sem vann miða á leik Íslands og Þýskalands 30. ágúst hlakkar mikið til að upplifa stemmninguna í Finnlandi. Sagði móðir drengsins að hann væri ekki enn kominn niður úr skýjunum og spenningurinn muni magnast eftir því sem ferðin nálgist.Vinningshafar:
Úrslitaleikurinn
Einar Jón GunnarssonÍsland - Þýskaland
Arnar Þór Arnarsson
Hildur Helga Kristjánsdóttir
Kristófer Bergmann Bjarnason
Salóme Pearl BeardÁ myndum eru vinningshafar á leið til Finnlands.
Mynd:
EM-stelpurnar árituðu 10 landsliðstreyjur sem voru í þriðja vinning. Þær vöktu mikla eftirtekt og hrifningu farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og skapaðist góð stemning í verslun Fríhafnarinnar. Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar færði þeim gjafabréf í þakklætisskyni fyrir mikla vinnu og góða landkynningu sem ekki veitir af á þessum erfiðu tímum. Stelpurnar munu án efa standa sig vel í Finnlandi og heilla alla með einstakri leikgleði og útgeislun.
Til baka








