Fréttir

  • 28.06.2011

    Ferðamenn geta keypt allt að 12 lítra af bjór

    Frumvarp til breytinga á tollalögum var samþykkt á alþingi þann 21. júní 2011. Lögin tóku gildi í dag eftir birtingu í Stjórnartíðindum. Ferðamenn geta keypt meira magn af bjór en áður. Ferðamenn mega hafa með sér tollfrjálst áfenga drykki og tóbak sem hér segir:

    Áfengi:
    1 lítra af sterku áfengi, 1 lítra af léttvíni og 6 lítra af bjór.
    Eða
    3 lítra af léttvíni og 6 lítra af bjór.
    Eða
    1 lítra af sterku áfengi og 9 lítra af bjór.
    Eða
    1,5 lítra af léttvíni og 9 lítra af bjór.
    Eða
    12 lítra af bjór.

    Tóbak:
    200 vindlingar
    Eða 250 g af öðru tóbaki


    .


    Til baka