„Ég hef sjaldan upplifað aðra eins þjónustulund og bros hjá afgreiðslufólki. Konan í snyrtivörudeildinni hlustaði vel á mig og vildi allt fyrir mig gera. Sýndi mér margar tegundir af möskurum og virtist virkilega vilja aðstoða mig. Ráðlagði mér einnig um nýtt krem. Starfsmaður í tækjadeildinni ráðlagði mér allt um dvd skrifanlega diska og hvernig tæknin væri að þróast. Ég á bara ekki til orð yfir þessa heimsókn mína í Fríhöfnina. Fríhöfnin fer á listann yfir topp 10 varðandi þjónustu hjá fyrirtæki og jákvætt starfsfólk hjá mér. Á ekki fleiri orð til að lýsa þessu. Þetta var bara jákvætt frá a-z.“