Fréttir
-
11.10.2011
Frábærir hópar í heimsókn í Fríhöfninni
Það var óvenju mikið að gera hjá starfsmönnum Fríhafnarinnar að taka á móti hópum í síðustu viku. Fimm skemmtilegir og líflegir hópar komu á aðeins þremur dögum. Í heildina voru þetta 160 manns. Konur frá Kvenfélagi í Vogum fóru til Manchester, starfsmenn Hjartaverndar ásamt mökum fóru til Búdapest, félagsmenn í félagi kvenna í atvinnurekstri skruppu til Boston á ráðstefnu, starfsmenn Hagvangs fóru til Manchester og starfsmenn leikskólans Vallar á Ásbrú í Reykjanesbæ skelltu sér til Orlando.
Það var mikil gleði bæði hjá gestum Fríhafnarinnar og starfsmönnum þessa daga. Boðið var upp á stutta kynningu á fyrirtækinu. Hópar voru leiddir inn í Dutyfree Fashion verslunina þar sem hönnuðir frá Ellu og Spiral voru í heimsókn á fimmtudeginum og kynntu sínar vörur undir góðum undirtektum viðskiptavina. Hafliði frá Mosfellsbakaríi bauð upp á handgert konfekt handa sælkerum sem áttu leið hjá og kynnt voru ýmsir drykkir, má þar nefna rauðvínin Sartori Amarone, Padrone Brunello og Villa Puccini. Hvítvínin Villa Puccini og Hoya De Cadenas Cava. Einnig var blandaður Kir Royal drykkur sem inniheldur Hoya De Cadenas Cava og smá skvettu af Bláberjalíkjör.
Starfsmenn Fríhafnarinnar þakka hópunum fyrir innlitið.

Til baka























