Fréttir

  • 16.09.2011

    Fríhöfnin 53 ára

    Fríhöfnin heldur upp á afmælið sitt í dag með því að opna nýja og glæsilega heimasíðu. Fríhöfnin tók til starfa árið 1958 og hefur farið í gegnum margar breytingar á þessum 53 árum. Þegar verslunin opnaði fyrst þá var eingöngu hægt að kaupa áfengi og tóbak og aðeins fjórir starfsmenn í vinnu.   Í dag starfa yfir eitt hundrað manns, verslanirnar eru sex talsins og Fríhöfnin selur yfir 40 þúsund vörutegundir.

    Um árabil hafa margir viðskiptavinir Fríhafnarinnar komið með innkaupalista frá fjölskyldumeðlimum með sér í verslunina til þess að gleyma nú engu sem þeir hafa verið beðnir um að versla.  Það er því skemmtilegt að segja frá því að með nýju heimasíðunni er hægt að flýta fyrir sér með því að panta í poka heiman frá sér í gegnum nýju síðuna og borga þegar pokinn er sóttur annað hvort í brottfarar- eða komuverslun, eftir því sem við á.

    Fríhöfnin hefur farið í gegnum miklar breytingar eins og áður segir. Nýjustu breytingar eru á Iceland Dutyfree versluninni sem staðsett er í suðurbyggingu og selur eingöngu íslenskar vörur. Verslunin sem er fyrir farþega sem fara til landa utan Schengen tók stökkbreytingum og selur íslenskar vörur,  áfengi og snyrtivörur í alþjóðlegum vörumerkjum svo eitthvað sé nefnt. Einnig tókst vel til þegar Dutyfree Fashion fór í gegnum allsherjar andlitslyftingu í sumar. Sú verslun hefur verið í eigu Fríhafnarinnar frá því sumarið 2010. Í Dutyfree Fashion má finna þekkt vörumerki fyrir konur og karla á borð við Boss, Lloyd og Burberry, en Dutyfree Fashion er eina verslunin á Íslandi sem býður upp á þennan vinsæla fatnað og fleiri heimsþekkt vörumerki eru væntanleg á næstu mánuðum.  Íslensku vörumerkin sem Dutyfree Fashion býður upp á eru Farmers Market, KronKron, Spiral og Ella.  Rey vörumerkið mun bætast við íslensku flóruna í október. Mikið úrval er í brottfarar- og komuverslunum Fríhafnarinnar.  Sem dæmi má nefna að yfir 20 nýjar viskítegundir hafa bæst við það fjölbreytta úrval sem fyrir er og úrvalið af léttvíni er líklega hvað mest í Fríhöfninni af slíkum verslunum á Norðurlöndunum og þótt víðar væri leitað.


    Til baka