Fréttir
-
04.04.2007
Fríhöfnin ehf. er hætt sölu á raftækjum
Frá og með 1. apríl 2007 hefur Fríhöfnin ehf. hætt sölu á raftækjum en þann sama dag opnaði ELKO nýja verslun á brottfararsvæði Flugstöðvar Leifs Eiríksonar.
ELKO býður þekkt vörumerki raftækja á lágu verði. Verslunin býður upp á nýjustu raftækin á markaðinum í dag s.s. MP3 spilara, myndavélar, hljómtæki, GSM síma og margt fleira.
Einnig hóf ELKO rekstur á 80m2 svæði í komuverslun Fríhafnarinnar, svokallaða "búð í búð".
Til baka