Fréttir

  • 09.03.2011

    Glens og gaman í Fríhöfninni í tilefni af öskudegi

    Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Fríhöfninni í morguntraffíkinni. Stemmningin var mjög góð enda margs konar verur á ferli sem skemmtu farþegum sem voru á leið út fyrir landssteinana.
    Í tilefni af öskudegi ákváðu starfsmenn Fríhafnarinnar að halda upp á daginn með því að mæta til vinnu í furðufötum farþegum til mikillar gleði. Stórir öskupokar voru hengdir upp í loftið til að skapa skemmtilega stemmningu. Starfsmenn settu mikinn svip á lífið inní verslun og skemmtu þeir sér vel með farþegum.

    Við eigum flest okkar minningar úr æsku um það að halda upp á öskudaginn. Í þá daga fórum við kannski ekki í furðufatabúninga eins og börnin gera í dag en saumaðir voru öskupokar sem menn hengdu hver á annan. Ákveðið var að hvetja alla starfsmenn til að taka þátt og mæta í skemmtilegum búningum til að halda saman upp á þennan dag. Það voru heldur betur litríkir einstaklingar sem mættu til starfa. Þar voru mætt prumpublaðra, kúrekar, hippar, nornir, kötturinn með höttinn, sjóræningi með spúsu sína, arabi og ýmsar aðrar furðuverur. Farþegarnir voru mjög hissa á uppátæki starfsmanna, sumir áttuðu sig ekki á að öskudagurinn væri í dag aðrir hlógu og skemmtu sér og tóku jafnvel myndir af starfsmönnum. Einn farþegi sagðist vera mjög ánægður með framtakið og vildi sjá svona jákvæð uppátæki oftar. Krakkar á leið til útlanda tóku sig til og sungu lag inní verslun og fengu að sjálfsögðu sælgæti í verðlaun. Ragnheiður norn hjálpaði við afgreiðslu í snyrtivörudeildinni, Sólveig prumpupoki fann rétta meik litinn fyrir ungu dömuna og trúðurinn sá eini sanni aðstoðaði við að kynna nýjan drykkinn sem er til sölu í Fríhöfninni.

    Í flugstöðinni var margt um manninn í morgunsárið, Iceland Express flaug til London og Kaupmannahafnar, Icelandair flaug til Osló, Stokkhólms, Kaupmannahafnar, Manchester og London.

    Hjá Fríhöfninni vinna um 100 starfsmenn og voru tæplega 35 manns mætt til vinnu í morgun.

    Eftirfarandi fróðleikur um öskudaginn er fenginn af heimasíðu Vísindavefsins. Sögur segja að öskudagur sé siður sem á sér rætur í kaþólskar venjur. Á miðvikudegi 7. viku fyrir páska hófst 40 daga fasta þar sem ekki átti að neyta kjöts og jafnvel annarra fæðutegunda. Þetta var gert til að undirbúa sálina fyrir páskana og innri hreinsun og helgun en ekki síst var þetta tími iðrunar. Það skal því ekki undrast að fólk hafi gert sér glaðan dag áður en langafastan hófst.
    Sú hefð að hengja öskupoka á fólk finnst ekki annars staðar en á Íslandi. Talið er að rekja megi upphaf þess til kaþólskunnar og krafts öskunnar sem gjarnan var mögnuð með heilögu vatni. Menn tóku ösku með sér heim úr kirkjum til að blessa heimilið. Þessi pokasiður þekkist á Íslandi allt frá miðri 18. öld. Hér skiptist pokasiðurinn lengi vel í tvennt eftir kynjum: Konur hengdu öskupoka á karla en karlar poka með steinum á konur. Líklegt er að ólík kynjahlutverk og aðgengi að hlutum hafi þar skipt máli en lykilatriði hjá báðum kynjum var að koma pokunum fyrir svo að fórnarlambið tæki ekki eftir því.

    Skoða myndasafn


    Til baka