Fréttir

  • 18.06.2007

    Golfkennsla og mót fyrir starfsfólk FLE og Fríhafnarinnar

    Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) og Fríhöfnin gerðu styrktar- og samstarfssamning við Golfklúbb Suðurnesja (GS) í vor.  Hluti af þeim samningi var skipulagning golfkennslu fyrir starfsfólk FLE og Fríhafnarinnar. Kennslan fór fram í maí og júní og í kjölfar hennar var haldið golfmót á æfingavellinum á Leiru.  Þar sem starfsfólk í verslunum vinna á vöktum voru haldin tvö mót, 13. og 15. júní.  Góð þátttaka var meðal starfsfólks í kennslunni, en rúmlega 40 manns nýttu sér hana.  Þótti vel hafa tekist til með þetta framtak.   

    Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 13. júní voru:
    1. sæti Jón Gauti Jónsson
    2. sæti Magnús Jensson
    3. sæti Tryggvi Blöndal

    Alls tóku 23 starfsmenn þátt í mótinu.

    Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 15. júní voru:
    1. sæti Berglind Richards
    2. sæti Þorgeir Axelsson
    3. sæti Tinna Laxdal Gautadóttir

    Alls tóku 16 starfsmenn þátt í mótinu.
     


    Til baka