Fréttir

  • 15.07.2005

    Golfkennsla og mót fyrir starfsfólk FLE og Fríhafnarinnar

    Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) og Fríhöfnin gerðu styrktar- og samstarfssamning við Golfklúbb Suðurnesja (GS) í vor.  Hluti af þeim samningi var skipulagning golfkennslu fyrir starfsfólk FLE, Fríhafnarinnar og Íslensks markaðar.  Kennslan fór fram í júní og í kjölfar hennar var haldið golfmót á æfingavellinum á Leiru.  Þar sem starfsfólk í verslunum vinna á vöktum voru haldin tvö mót, 27. og 30. júní.  Mjög góð þátttaka var meðal starfsfólks í kennslunni, en rétt tæplega 80 manns nýttu sér hana.  Þótti vel hafa tekist til með þetta framtak.   

    Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 27. júní voru:

    1. sæti Jens Kristbjörnsson
    2. sæti Sturla Eðvarðsson
    3. sæti Guðný María Jóhannsdóttir

    Alls tóku 19 starfsmenn þátt í mótinu.

    Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 30. júní voru:

    1. sæti Guðjón Guðjónsson
    2. sæti Íris Dögg Steinsdóttir
    3. sæti Sigurður B. Bjarnason

    Alls tóku 16 starfsmenn þátt í mótinu.


    Til baka