Fréttir

  • 27.06.2006

    Golfkennsla og mót fyrir starfsfólk FLE og Fríhafnarinnar

    Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) og Fríhöfnin gerðu styrktar- og samstarfssamning við Golfklúbb Suðurnesja (GS) í vor. Hluti af þeim samningi var skipulagning golfkennslu fyrir starfsfólk FLE og Fríhafnarinnar.

    Kennslan fór fram í júní og í kjölfar hennar var haldið golfmót á æfingavellinum á Leiru. Þar sem starfsfólk í verslunum vinna á vöktum voru haldin tvö mót, 19. og 21. júní.

    Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin þann 19. júní voru:

    1. sæti Tryggvi Blöndal
    2. sæti Dúfa D. Ásbjörnsdóttir
    3. sæti Magnús Jensson

    Alls tóku 14 starfsmenn þátt í mótinu.

    Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin þann 21. júní voru:

    1. sæti Snorri Guðlaugsson
    2. sæti Hermann Helgason
    3. sæti Unnar Þ. Bjarnason


    Alls tóku 24 starfsmenn þátt í mótinu.
    Til baka