04.07.2008
Golfmót starfsmanna FLE, FMK og Fríhafnarinnar
Golfmót starfsmanna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE), Flugmálastjórnarinnar Keflavíkurflugvelli (FMK) og Fríhafnarinnar var haldið föstudaginn 27. júní sl. Skipulagning mótsins var á höndum Golfklúbbs Suðurnesja (GS) og liður í samstarfi fyrirtækjanna þriggja og GS.
Þetta er fjórða árið í röð sem FLE, Fríhöfnin og GS eru í samstarfi en vegna stofnunar nýs fyrirtækis um rekstur FLE og FMK í byrjun árs 2009 var ákveðið að halda sameiginlegt mót fyrir starfsmenn fyrirtækjanna þriggja í ár.
Góð þátttaka var á mótinu eða um 60 manns. Til að gefa sem flestum tækifæri á að taka þátt var bæði leikið á Hólmsvelli og á æfingavellinum Jóel. Leikið var eftir reglum „Texas Scramble“ á Hólmsvelli en um einstaklingskeppni var að ræða á Jóel.
Vinningshafar á Hólmsvelli voru:
1.sæti Sigurgeir Ólafsson
George Arnar Þorsteinsson
Kristján Carlsson Granz
2.sæti Eiríkur Ómar Sveinsson
Þorsteinn Stefánsson
Þorgeir Axelsson
Vilhjálmur Arngrímsson
3.sæti Haukur Guðmundsson
Guðmundur J. Hjaltested
Elín Árnadóttir
Vinningshafar á Jóel voru:
1.sæti Haraldur Líndal
2.sæti Signý Sigurhansdóttir
3.sæti Kristín Rósa Sigurðardóttir
Til baka