Fréttir
-
19.10.2006
Hattadagur hjá starfsfólki Fríhafnarinnar
Helgina sem leið var haldin fyrirlestur fyrir starfsfólk Fríhafnarinnar þar sem fjallað var um leiðir til að gera vinnuna skemmtilegri, viðhorf okkar gagnvart vinnunni og að sjá hlutina í jákvæðu ljósi og nota gott skopskyn. Fyrirlesturinn var m.a. byggður á bókin Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results, sem kom út árið 1995.
Fyrirlesturinn vakti mikla lukku á meðal starfsfólks sem mætti til vinnu með allskyns skrautlega hatta sér og öðrum til skemmtunar. Þetta frábæra framtak starfsfólksins hefur núþegar skapað líflegri og skemmtilegri vinnustað en til þess þarf ekkert nema smá hugmyndaflug og framtakssemi.
Samkvæmt nýlegum rannsóknum vinna Íslendingar lengsta vinnuviku allra þjóða í Evrópu. Við verjum stærsta hluta dagsins eða u.þ.b. 75% af vökutíma okkar í vinnunni og því er mikilvægt að hafa gaman af vinnunni.
Höfum gaman í vinnunni.
Til baka

