Fréttir
-
07.03.2006
Heilsuvika Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Fríhafnarinnar
Dagana 27 febrúar til 4 mars stóð Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Fríhöfnin fyrir heilsuviku starfsmanna.Markmið heilsuviku var að vekja starfsfólk til umhugsunar um hollar lífsvenjur og styðja starfsfólkið við að tileinka sér heilbrigðari lífstíl.
Stuttir fyrirlestrar og kynningar voru í Marklandi, ráðstefnusal flugstöðvarinnar. Meðal efnis var danska vigtarráðgjöfin, útlit & snyrtimennska, rope yoga, heilsan í fyrirrúmi, osteópatía, nálastungur, grasalækningar, orkurík fæða og hláturyoga.
Líkamsræktarstöðvarnar Lífstíll og Perlan voru með opin hús og Golfklúbbur Suðurnesja tók á móti starfsmönnum og kynnti starfssemi sína.
Undirtektir voru góðar og var samhugur á meðal starfsfólks að heilsuvikan hafi vakið marga til umhugsunar um heilbrigt líferni. Starfsfólki þótti framtakið fræðandi og bráðskemmtilegt.
Myndin er tekin á heilsuviku Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Fríhafnarinnar
Til baka