Fréttir
-
15.03.2010
Hugmyndasamkeppni haldin í Fríhöfninni
Reykjavík Distillery er Íslenskt fyrirtæki stofnað 2009. Það sérhæfir sig í þróun og framleiðslu áfengra drykkja, unnum úr fyrstaflokks íslensku hráefni. Fyrsta varan sem Reykjavík Distillery kynnir á markað er Íslenskur bláberjalíkjör. Stefnan er að hann verði í hillum Fríhafnarinnar fyrir sumarið. Aðrir drykkir eru í þróun og verða kynntir á næstu misserum.Reykjavík Distillery ákvað að halda hugmyndasamkeppni fyrir starfsfólk Fríhafnarinnar. Samkeppnin fólst í hönnun á flöskumiða og jafnframt gerð vörumerkis. Alls bárust ellefu tillögur frá starfsmönnum.
Sigurvegari samkeppninnar var Sigurður Svavar Erlingsson og hlaut hann að launum fyrstu tilbúnu flöskuna af bláberjalíkjörnum. Í öðru sæti voru það Guðumundur Pálmason og Einar Gunnarsson, þeir sendu inn sameiginlega tillögu. Í þriðja sæti voru Sóley Ragnarsdóttir og Arna Árnadóttir, þær sendu inn sitthvora tillöguna. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.
Á mynd eitt eru: Snorri Jónsson hjá Reykjavík Distillery, Sigurður Svavar Erlingsson, Sóley Ragnarsdóttir og Guðmundur Pálmason Fríhafnarstarfsmenn. Á myndina vantar: Örnu Árnadóttur og Einar Gunnarsson
Á mynd tvö er: Snorri Jónsson.
Til baka

