Fréttir
-
12.08.2011
Húsmæður stoppuðu í Fríhöfninni á leið til Króatíu
Fríhöfnin fékk skemmtilegan hóp kvenna í heimsókn miðvikudaginn 10. ágúst. Þetta voru hvorki meira né minna en 50 konur á leið í húsmæðraorlof til Króatíu. Þær tóku flugið til Mílanó og keyrðu þaðan yfir til Króatíu til að eyða þar viku í að ferðast um.
Húsmæðurnar fengu kynningu á því helsta í Fríhöfninni. Þær fengu að bragða á kampavíninu Codorniu ásamt vín mánaðarins og gæða konfekti frá Anthon Berg. Enginn annar en Heiðar Jónsson kynnti fyrir dömunum Vanitas, sem er nýtt ilmvatn frá Versace. Ferðinni um Fríhöfnina lauk í tískuvöruversluninni Dutyfree Fashion sem opnaði fyrr í sumar eftir gagngerar endurbætur.
Dömur! Takk kærlega fyrir heimsóknina.
.jpg)
Til baka