25.06.2008
Jagermeister mótorhjól í brottfararverslun
Í brottfararverslun Fríhafnarinnar er nú til sýnis handsmíðað þriggja hjóla Jagermeister mótorhjól.
Þetta sérstaka mótorhjól er hluti af auglýsingaherferð Jagermeister og hefur verið til sýnis víða um heim. Hjólið er staðsett í áfengisdeild í brottfaraverslun og verður til sýnis fram í ágústmánuð.
Hjólið er eitt af þremur sinnar tegundar og er áætlað verðmæti þess um 800.000 DKK
Hjólið er af gerðinni Boss Hoss GW ZZ4 og er ekki með neinni venjulegri mótorhjólavél heldur 355 hestafla 5,7 lítra V 8 vél úr Corvettu. Hjólið er með þriggja stiga sjálfskiptingu og einum gír afturábak enda engin smásmíði. Rúsínan í pylsuendanum er innbyggður kælir með krana sem geymir kaldan og svalandi Jagermeister.
Hvetjum farþega sem eru á leið erlendis að kíkja við í Fríhöfninni og líta þetta sérstaka þriggja hjóla Jagermeister mótorhjól augum.
Til baka