02.06.2008
Leikhúsleikur Fríhafnarinnar
Fríhöfnin bauð upp á netleik í samstarfi við Leikhús.is í maí. Leikurinn gekk út á það að svara léttri spurningu um tilboð mánaðarins, svarið var að finna inn á heimasíðu Fríhafnarinnar. Þátttaka var mjög góð. Dregið var úr réttum svörum og vinningshafi var Pernille Olsen. Hún vann gjafabréf að andvirði 10.000 kr. sem gildir í Fríhöfninni ásamt gjafabréfi fyrir tvo í Borgarleikhúsið í boði Fríhafnarinnar.
Mynd: Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar afhendir vinningshafa leiksins henni Pernille Olsen gjafabréfin.
Til baka