Fréttir

  • 22.02.2012

    Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni í tilefni af öskudegi

    Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Fríhöfninni í morgunsárið og verður áfram fram eftir degi. Lífleg stemmning enda margs konar verur á ferli sem skemmtu farþegum sem voru á leið út fyrir landssteinana. Í tilefni af öskudegi ákváðu starfsmenn Fríhafnarinnar að halda aftur upp á daginn með því að mæta til vinnu í furðufötum, farþegum til mikillar gleði. Var þessi skemmtun sett á fyrir ári síðan og þar sem uppátækið heppnaðist vel þá var ákveðið að festa þessa hátíð í sessi.  Stórir öskupokar hanga úr loftum til að skapa öskudagsstemmninguna. Starfsmenn setja mikinn svip á lífið inní verslun og skemmta bæði sér og farþegum.

     

    Öskudagurinn er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudaginn í sjöundu viku fyrir páska. Öskudagurinn tengist kaþólskri trú og nafn dagsins er dregið af því að sums staðar er ösku dreift yfir höfuð kirkjugesta eða hún smurð á enni þeirra. En á Íslandi var hefð fyrir því að að sauma öskupoka og hengja á hvert annað. Í dag klæðast börn og starfsmenn Fríhafnarinnar furðufatabúningum til að halda upp á daginn. Allir starfsmenn voru hvattir til að taka þátt og mæta í skemmtilegum búningum. Það voru heldur betur litríkir einstaklingar sem mættu  til starfa. Þar voru meðal annars sæt hjón frá Hawaii, Bleiki Pardusinn, kleópatra einnig nornir, hermaður og djöfullinn sjálfur svo eitthvað sé nefnt. Sumir farþegar voru undrandi á þessu nýja yfirbragði á versluninni, aðrir  hlógu og skemmtu sér og tóku jafnvel myndir af starfsmönnum. Bleiki Pardusinn passaði upp á að veita góða þjónustu í snyrtivörudeildinni, Hawaii kallinn seldi sælgæti og djöfullinn seldi rauðan varalit. Verða þessar furðuverur á sveimi í Fríhöfninni fyrir hvert flug í dag.

     

    Farþegar í flugstöðinni áttu flug meðal annars til London, Kaupmannahafnar, Osló og Stokkhólms og síðdegis verður flogið til Bandaríkjanna eins og tíðkast.


    Til baka