Fréttir
-
19.04.2011
Magnús Bjarni Baldursson ráðinn innkaupastjóri Fríhafnarinnar
Gengið hefur verið frá ráðningu nýs innkaupastjóra Fríhafnarinnar, en hátt í 70 manns sóttu um starfið. Magnús var markaðsstjóri SpKef sparisjóðs, frá 2010 að yfirtöku Landsbankans á sjóðnum í mars 2011. Áður var hann framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar-Mindshare frá 2002 til 2010, og byggði það félag upp frá stofnun. Þar á undan starfaði hann sem rannsóknastjóri hjá PricewaterhouseCoopers og sá einnig um markaðsdeild PWC. Magnús hefur einnig starfað hjá Landmælingum Íslands, Borgarlækni, Landlækni og Iðnaðarráðuneyti, svo nokkuð sé nefnt.Á starfstíma sínum hjá Auglýsingamiðlun-Mindshare hefur Magnús starfað við markaðsráðgjöf fyrir mörg stærstu fyrirtæki og vörumerki hérlendis, sem og við ýmis erlend verkefni. Má þar nefna N1, Nóa-Síríus, Kelloggs, Ölgerðina, Reykjavíkurborg, Íslandsbanka, Spron, Vodafone, Nettó-Samkaup, Innnes, Sterling, Iceland- Express, Íslenska Getspá, Alvögen, Orkusöluna, 365 Miðla, Árvakur, A4, BMW, Hyundai, Ásbjörn Ólafsson, Dominos, Heineken og mörg fleiri.
Á árunum 1988-2002 sinnti Magnús kennslu við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, m.a í aðferðafræði og lýðfræði, en frá árinu 2006 hefur hann einbeitt sér að kennslu í markaðsfræði og vörumerkjastjórnun.
Magnús hefur verið virkur í starfi Sambands íslenskra auglýsingastofa og sat í mörg ár í fjölmiðlanefndum sambandsins. Hann var formaður SÍA á árunum 2007-2010, en sat þar á undan í stjórn sambandsins, eða frá 2004-2007. Þá hefur Magnús setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja hér á landi.
Að loknu stúdentsprófi frá MR. lauk Magnús B.S. gráðu frá Háskóla Íslands 1986, og meistaragráðu frá York University í Toronto, Kanada 1988 í hagrænni aðferðafræði.Magnús Bjarni Baldursson er kvæntur Sigríði Haraldsdóttur, sviðsstjóra hjá Landlæknisembættinu, og eiga þau tvö börn.
Til baka