Fréttir
-
09.07.2008
Ný reglugerð um leyfilega heimild um tollfrjálsan varning við komuna til landsins
Þann 1. júlí sl. kynnti Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra nýja reglugerð sem heimilar þeim sem ferðast til útlanda að hafa meðferðis varning að verðmæti 65 þúsund við komuna til landsins, í stað 46 þúsund áður. Þetta er ríflega fjörutíu prósent hækkun frá fyrri reglugerð en sex ár eru síðan þessari upphæð var síðast breytt.
Einnig er ferðamönnum heimilt að hafa meðferðis tollfrjálst 3 lítra af léttvíni í stað 2,25 lítra áður og kjósi þeir að hafa meðferðis bjór er þeim heimilt að hafa meðferðis tollfrjálst einn og hálfan lítra af léttvíni í stað eins lítra.Tollfrjáls varningur í myndrænu formi
Mynd: Ný komuverslun Fríhafnarinnar sem opnuð var 10. apríl 2008.
Til baka