Fréttir

  • 09.05.2011

    Ný stjórn Fríhafnarinnar

    Aðalfundur Fríhafnarinnar var haldinn þann 5. maí s.l.  Rannveig Guðmundsdóttir stjórnarformaður flutti skýrslu stjórnar og Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri fór yfir reikninga félagsins.  Í stjórn félagsins árið 2010 – 2011 voru:  Rannveig Guðmundsdóttir, stjórnarformaður, Ólafur Thordersen meðstjórnandi og Drífa Snædal meðstjórnandi.  Drífa fór utan til náms haustið 2010 og tók Bergur Sigurðsson, varamaður sæti hennar í stjórn félagsins.
    Breytingar voru gerðar á samþykktum Fríhafnarinnar á aðalfundinum og fjölgað var í stjórn, úr 3 aðalmönnum í fimm og einn varamann. 
    Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í stjórn Fríhafnarinnar 2011 - 2012.  Þórólfur Árnason, Ólafur Thordersen, Bergur Sigurðsson, Arnbjörg Sveinsdóttir og Jónína Holm.  Varamaður er Elín Árnadóttir.  Rannveig Guðmundsdóttir víkur úr stjórn og þakkar starfsfólk Fríhafnarinnar og stjórn henni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins á undanförnum árum.

    Til baka