Fréttir

  • 07.01.2008

    Nýr verslunarstjóri Fríhafnarinnar ehf.

    Páll Ingi Magnússon hefur verið ráðinn verslunarstjóri Fríhafnarinnar ehf. og tók við starfinu 2. janúar síðastliðinn. Hann lauk námi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands á árinu 2007 og hefur víðtæka reynslu á sviði verslunarstjórnunar. Páll Ingi hefur síðastliðin tvö ár verið búsettur í Brussel þaðan sem hann sinnti námi sínu. Hann er kvæntur Ástu Rut Jónasdóttur og eiga þau eitt barn.

    Jón Helgason, sem verið hefur verslunarstjóri Fríhafnarinnar undanfarin 36 ár, hefur látið af störfum. Honum eru þökkuð vel unnin störf með ósk um gott gengi.


    Til baka