Fréttir
-
12.08.2010
Viktoria's Secret til sölu í Fríhöfninni
Loksins, loksins eru Victoria‘s Sectet vörurnar komnar í sölu hjá okkur. Við höfum reynt í mörg ár að fá fund með Victoria‘s Secret í New York án árangurs. Í desember í fyrra fengum við loks klukkustundar langan fund í aðalstöðvum VS með konu sem stjórnar markaðssvæðum fyrirtækisins utan Bandaríkjanna. Hún var 15 mínútum of sein á fundinn en benti okkur samt strax á að við ættum aðeins 45 mínútur eftir af tímanum þar sem hún væri að fara á annan mikilvægan fund. Hún varð hins vegar svo áhugasöm um það sem við höfðum fram að færa að fundinum lauk ekki fyrr en eftir tvo og hálfan klukkutíma.
Niðurstaðan varð sú að við myndum hefja sölu á vörum Victoria‘s Secret einhvern tíma á árinu 2010. Mikilvægasta ástæðan fyrir samþykki þeirra virtist vera hversu mikið Íslendingar væru að kaupa af vörunum í Ameríku og burðast með heim. Með verulegum takmörkunum á leyfðu vökvamagni í handfarangri, auk þess sem flugfélög eru farin að takmarka farangursþyngd, væri stöðugt erfiðara fyrir íslenska viðskiptavini að verða sér út um vinsælar snyrtivörur VS.
Formleg opnun á sölu á vörunum var fimmtudaginn 12. ágúst og miðvikudaginn 11. ágúst fór leikur í loftið inná facebook. Þátttaka var mjög góð, tæplega 300 manns tóku þátt í leiknum á þessum stutta tíma. Tveir heppnir þátttakendur voru dregnir út. Það voru þær Ingunn Lára Magnúsdóttir og Herborg Hulda Símonardóttir. Þær voru sóttar ásamt tveimur gestum (Guðrúnu Sigurbjörnsdóttur og Jóhönnu Bjarnadóttur) sem þær buðu með sér eldsnemma fimmtudagsmorgun á Hummer Limmó og voru viðstaddar þegar Victoria‘s Sectet vörurnar voru afhjúpaðar. Vinningshafarnir voru að sjálfsögðu leystar út með gjöfum frá Victoria‘s Sectet.
Ragnheiður Gröndal ásamt Guðmundi Péturssyni spiluðu og sungu fyrir gesti og myndaðist skemmtileg stemming inn í versluninni.
Glæsilegar hillur hafa verið settar upp bæði í komu- og brottfararverslun með miklu vöruúrvali í Secret Garden línunni. Þar bjóðast helstu ilmir, gloss, maskarar, augnskuggar auk nokkurra ferðapakka eða „travel set“. Verðið er mjög svipað og á öðrum evrópskum flugvöllum og við hvetjum fólk til að skoða úrvalið á heimasíðunni - www.dutyfree.is
Óskalistinn er hentugur fyrir þá sem ekki eru að ferðast sjálfir. Þar má velja vörur og senda óskalista á vini eða vandamenn sem eiga leið til útlanda og versla í Fríhöfninni.
Myndir frá opnun
























Til baka