Fréttir

  • 18.01.2012

    Vinsælu BED HEAD hárvörurnar komnar í Fríhöfnina

    Nú hefur Fríhöfnin hafið sölu á vinsælu hárvörunum BED HEAD. Hárvörur sem gerðar eru af hárfagmönnum og er eitt leiðandi hárvörumerki á markaðinum í dag.  Þessar frábæru og ilmandi vörur hafa fram að þessu eingöngu fengist á hárgreiðslustofum. Í línunni er eitthvað fyrir alla og einkennist hún af litríkum brúsum ásamt frábærum ilm.

    BED HEAD er lífleg & hressandi lína,sem hefur slegið í gegn um allan heim. Nýlega kom á markaðinn Candy Fixation by BED HEAD, lína sem einkennist af flottum og spennandi mótunarefnum, þar má nefna hið sívinsæla Sugar Dust sem er volume púður sem sett er í rótina og hefur skapað sér vinsælda ásamt mörgum skemmtilegum efnum í hárið.

    BED HEAD er þekktast fyrir frábært vöruúrval fyrir alla & allar hárgerðir. BED HEAD línan fæst bæði í brottfarar- og komuverslun. Upplagt fyrir viðskiptavini að nýta sér í leiðinni „Panta og sækja“ þjónustuna sem er að finna á heimasíðunni.

    Hér má sjá vöruúrvalið http://www.dutyfree.is/leita?keywords=bed+head


    Til baka