Fríhafnarverslanir

Fríhöfnin ehf. rekur sex verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 1) brottfararverslun, 2) Iceland Dutyfree, 3) brottfararverslun – Last minute shopping, 4) Dutyfree utan schengen, 5) Dutyfree Fashion og 6) komuverslun. Verslanir Fríhafnarinnar eru ALLTAF opnar þegar flug er, hvort sem það er áætlunarflug, einkaflug eða jafnvel seinkun á flugi. Fríhöfnin leggur áherslu á að fylgja tísku og straumum hverju sinni þó svo að alltaf sé hægt að kaupa þekkt vörumerki og sígildar vörur sem eru vinsælar. Einnig leggur Fríhöfnin áherslu á að bjóða til sölu vörur sem ekki fást á innanlandsmarkaði til mikillar gleði viðskiptavina því nýjungagjörnum Íslendingum finnst spennandi að kaupa vörur í Fríhöfninni sem ekki fást á innanlandsmarkaði.

Helstu vöruflokkar Fríhafnarinnar eru áfengi, tóbak, sælgæti, snyrtivörur, leikföng og fatnaður í Dutyfree Fashion.


Brottfararverslun norðurbygging

Snyrtivöru - og sælgætisdeild Sími: 425 0403
Apótek og áfengisdeild Sími: 425 0404

 

Brottfararverslanir suðurbygging

Iceland Dutyfree Sími: 425 0430
Last minute shopping Sími: 425 0430
Dutyfree utan Schengen Sími: 425 0424

dutyfree@dutyfree.is

 

Dutyfree Fashion Sími: 425 0402

                                                 

Komuverslun

Verslun Sími: 425 0401
Áfengis - og sælgætisdeild Sími: 425 0420

komuverslun@dutyfree.is

 

Opnunartími: Ef það er flug eru verslanir Fríhafnarinnar opnar

 

Skrifstofa Sími: 425 0410




Þar sem allar vörur eru undanskildar virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum (tax- and duty-free) kemur verslun í flugstöðinni lítið við budduna.