Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

Meðferð persónuupplýsinga

Meðferð persónuupplýsinga

Hjá Fríhöfninni

Fríhöfnin leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Fríhöfnin leitast við að takmarka vinnslu persónuupplýsinga eins og hægt er og safnar ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er.

Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á vegum Fríhafnarinnar, lýtur lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“).

Fríhöfnin gætir þess að sú vinnsla persónuupplýsinga sem hún hefur með höndum, sem ábyrgðaraðili vinnslu, sé í samræmi við persónuverndarlög.

Hér að neðan er að finna upplýsingar um söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í gegnum vef Fríhafnarinnar. Hér að neðan er einnig að finna upplýsingar um réttindi þín og hvernig þú getur nýtt þau. Isaiva móðurfyrirtæki Fríhafnarinnar hefur skipað persónuverndarfulltrúa Isavia og Fríhafnarinnar, netfang hans er personuvernd@isavia.is

Hvaða upplýsingum söfnum við í gegnum vefinn?

Upplýsingar sem þú lætur okkur í té

Vera má að þú látir okkur í té með beinum eða óbeinum hætti persónuupplýsingar er varða þig, til dæmis þegar nýtir þér þjónustu sem við bjóðum á vefsíðu okkar, hefur samband við okkur gegnum vefgátt eða með öðrum hætti. Þessar upplýsingar geta verið:

  • Persónugreinanlegar upplýsingar – nafn, heimilisfang, netfang, kennitala, símanúmer o.s.frv.
  • Greiðsluupplýsingar – greiðslukortaupplýsingar

Upplýsingar sem við söfnum um þig

Þegar þú nýtir þér þjónustu okkar (t.d. Express þjónustu í brottfararverslun) þá getur verið að við söfnum eftirfarandi upplýsingum:

  • Persónugreinanlegar upplýsingar – t.d. nafn, netfang og símanúmer
  • Upplýsingar um vöru eða þjónustu – upplýsingar um þá vöru eða þjónustu sem þú kaupir af okkur
  • Fjárhagsupplýsingar – t.d. upplýsingar um það ef greiðslukortið þitt er lokað
  • Viðskiptasaga – upplýsingar um kaup, greiðslur og greiðslukortasamþykki vegna fyrri kaupa
  • Upplýsingar um samskipti þín við Fríhöfnina– Upplýsingar um samskipti þín við Fríhöfnina gegnum heimasíðu félagsins
  • Upplýsingar um tæki – IP-tala, tungumálastillingar, vafrastillingar, tímabeltisstillingar o.fl.
  • Landfræðilegar upplýsingar – landfræðileg staðsetning
  • Þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té auk upplýsinga um vöru eða þjónustu og fjárhagsuppýsingar eru nauðsynlegar til þess að við getum efnt okkar samningsskyldur gagnvart þér (veitt umbeðna þjónustu). Tilgangur söfnunar annarra upplýsinga er skýrður hér á eftir.

Hvað gerum við við upplýsingarnar?

Allar þær upplýsingar sem Fríhöfnin safnar eru nýttar til þess að framkvæma og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Þannig söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna samningssamband eða til að svara fyrirspurnum þínum.

Með hverjum deilum við upplýsingum?

Fríhöfnin deilir í sumum tilfellum upplýsingum með aðilum sem taka að sér tiltekna vinnslu upplýsinganna fyrir hönd Fríhafnarinnar og þá einungis í þeim tilgangi sem tilgreindur er.

Hvar geymum við upplýsingarnar?

Fríhöfnin geymir þínar persónuupplýsingar með öruggum hætti samkvæmt verklagi sem á við um hverja vinnslu fyrir sig.

Hversu lengi geymum við upplýsingar?

Það er mismunandi hversu lengi við geymum upplýsingarnar. Fríhöfnin fellur undir lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og öll mál sem varðveita skal samkvæmt þeim eru geymd í 30 ár og að því loknu færð til Þjóðskjalasafns Íslands. Þetta á t.d. við um beiðnir um fyrirspurnir á grundvelli upplýsingalaga og fyrirspurnir sem berast gegnum „hafðu samband“ form á vefnum . Önnur gögn er innihalda persónuupplýsingar eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er og að þeim tíma loknum er þeim eytt í samræmi við verklag Fríhafnarinnar þar um.

Réttur þinn til að fá aðgang að upplýsingum, láta leiðrétta þær eða eyða þeim

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig. Þú getur einnig í einhverjum tilvikum átt rétt á að persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar, framsendar annað eða þeim eytt. Ef þú vilt nýta þennan rétt vinsamlega fylltu út form sem finna má hér.

Við notum eftirfarandi fótspor (e. cookies)

FótsporNafnTilgangur
Google Analytics_ga, _gat, _gid, nmstat

Fótspor sem notuð eru til að safna upplýsingum um hvernig vefsíðan er notuð. Við notum upplýsingarnar við skýrslugerð í þeim tilgangi að gera síðuna notendavænni. Fótsporin safna upplýsingunum með dulkóðun, sem dæmi fjöldi notenda síðunnar, hvaðan notendur koma og hvaða síður á vefsíðunni það heimsótti.

Lestu upplýsingar um persónuvernd og utanumhald gagna hjá Google.

Hvernig get ég stýrt notkun á fótsporum?

Það að leyfa fótspor er ekki alltaf nauðsynlegt fyrir vefsíðuna og grundvallar virkni hennar. Samt sem áður, með því að leyfa þau getum við bætt upplifun þína á síðunni. Þú getur eytt út eða lokað á þessi fótspor, en með því mun ákveðin virkni eða þættir á síðunni ekki virka sem skyldi. Með því að smella á  "Ég samþykki" á borðanum sem birtist neðst á síðunni, samþykkir þú notkun fótspora.

Svona stillir þú fótspor á síðunni í mismunandi vöfrum: