Staðreyndir
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. var stofnuð með lögum frá Alþingi í maí 2000 og tók til starfa 1. október sama ár. Við stofnun á hinu nýja hlutafélagi var sameinaður rekstur tveggja ríkisstofnanna. Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli sem rak fríhafnarverslunina og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem rak fasteignina. Í 7. gr laganna segir að tilgangur félagsins sé að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, þ.m.t rekstur verslana með tollfrjálsar vörur á Keflavíkurflugvelli og hvers konar aðra starfsemi sem þessu tengist. Hluthafi fyrirtækisins er ríkissjóður og fer utanríkisráðherra með hlut ríkisins í því.
Í rekstrarleyfi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem gefið var út af utanríkisráðuneytinu þann 1. nóvember 2000 er félaginu meðal annars sett það markmið að í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verði ávallt veitt góð þjónusta við flugfarþega. Þá hefur rekstrarleyfið þann tilgang að félaginu er falið að annast rekstur og verslun með tollfrjálsar vörur á Keflavíkurflugvelli og hvers konar aðra starfsemi sem þessu samrýmist.
Fríhöfnin ehf. stofnað
Í upphafi árs 2005 var stofnað dótturfélag um verslunarrekstur FLE hf., Fríhöfnina ehf. sem tók við verslunarrekstri FLE. Fríhafnarverslunin var þar með aðskilin rekstri FLE, bæði stjórnunar- og rekstrarlega. Fasteignarekstur flugstöðvarinnar, ásamt stoðsviðum, heyrir áfram undir FLE en Fríhöfnin ehf. kaupir þjónustu af stoðsviðum FLE samkvæmt sérstökum samningi félaganna.
Heimilisfang
Fríhöfnin ehf.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
235 Keflavíkurflugvelli
Ísland
Tölvupóstfang: dutyfree@dutyfree.is
Kennitala: 611204-2130
Virðisaukaskattnúmer: 85128