Jafnréttis áætlun Fríhafnarinnar ehf.

 

Tilgangur og markmið

Jafnréttisáætlun fyrirtækisins er leið til að ná almennri starfsánægju og góðum starfsanda. Samkvæmt lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Tilgangur jafnréttisáætlunar Fríhafnarinnar er að tryggja fyllsta jafnrétti milli kvenna og karla á vinnustaðnum með það að markmiði að hægt sé að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað. Einnig skal tryggt að kynferðisleg áreitni sé ekki liðin á vinnustaðnum. Í jafnréttisáætlun þessari skal tryggt að starfsmönnum sé ekki mismunað vegna kyns, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, kynhneigðar, litarháttar, efnahags, ætternis, fötlunar, aldurs og stöðu að öðru leyti.

Hlutverk og verkefni jafnréttisfulltrúa

Jafnréttisfulltrúi skal vera skipaður af framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar. Jafnréttisfulltrúi skal fylgja jafnréttismarkmiðum og áætlun fyrirtækisins eftir og vera ráðgefandi fyrir stjórnendur og starfsmenn. Jafnréttisfulltrúi skal árlega gera úttekt á framkvæmd þessarar áætlunar og skila greinagerð um hversu vel hefur tekst til.
Jafnréttisfulltrúi skal vinna eftir þeim verkefnum sem tiltekin eru í áætlun og getur skipað til þess nefnd 2-3 starfsmenn úr hópi stjórnenda, starfsmannaþjónustu og annarra starfsmanna ef þörf þykir sér til aðstoðar. Gæta skal jafnréttis við skipun hópsins.

Gildissvið

Jafnréttisáætlun þessi er í gildi fyrir alla starfsmenn Fríhafnarinnar.

Launajafnrétti

Gæta skal við ákvörðun launa að fyllsta jafnréttis sé gætt en greiða skal jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og skulu þau viðmið sem lögð eru til grundavallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismun. Starfsmönnum er ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum.
Við ákvörðun starfskjara skal tryggt að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar þeirri ákvörðun feli ekki í sér kynjamismun. Hvort sem það er viðmið um frammistöðu í starfi, launa til lífeyris, orlofs eða veikindarétt eða hvers konar annarra starfskjara sem hægt er að meta til fjár.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Karlar og konur fái greidd sömu laun og njóti sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmætt störf. Árleg greining á launum og fríðindum starfsmanna. Leiðrétta skal laun ef óútskýranlegur mismunur kemur fram. Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri. Lokið í febrúar ár hvert.
Jafna skal hlutfall kynja í stjórnendastöðum. Ef stjórnunarstaða losnar skal gæta að jafnri stöðu kynja við ráðningu. Starfsmannaþjónusta - framkvæmdastjóri. Þegar stjórnendastarf losnar.

 

Laus störf, starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun.

Við ráðningu nýrra starfsmanna skal gæta þess að umsóknir séu opnar jafnt körlum og konum.
Ekki skal mismuna starfsmönnum eftir kyni hvað varðar möguleika til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar. Tryggja skal að allir starfsmenn óháð kyni geti sótt námskeið sem haldin eru sérstaklega til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf.

Gæta skal jafnréttis hvað varðar ábyrgð og þátttöku starfsmanna í starfshópum og nefndum.
Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Laus störf hjá Fríhöfninni skulu standa opin bæði konum og körlum. Samantekt á kynjahlutföllum í öllum starfshópum. Ef um óeðlilegt kynjahlutfall er að ræða skal sérstaklega tekið tillit til þess við ráðningar. Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri. Í lok febrúar ár hvert.
Öll störf auglýst. Yfirlit yfir auglýst störf, umsækjendur og ráðningar, til að tryggja að gætt sé jafnréttis samkvæmt jafnréttisáætlun fyrirtækisins. Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri. Þegar störf eru laus.
Öll starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun skal vera aðgengileg báðum kynjum. Greina skal árlega sókn kvenna og karla í sambærilegum störfum í endurmenntunar námskeið og í starfsþjálfun með að leiðarljósi að hvetja og tryggja að mismunur eigi sér ekki stað. Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri. Í lok maí ár hvert.

Starfshópar og nefndir skulu vera aðgengilegar báðum kynjum.

 

Greina skal árlega samsetningu á starfshópum og nefndum með tilliti til hlutfalls kynja. Ef um ójafna samsetningu er að ræða skal tryggja jafnt aðgengi kynja. Framkvæmdastjóri, verslunarstjóri og vaktstjórar. Endurskoða við stofnun nýs hóps eða nefndar eftir verkefnum.

 

Samræming fjölskyldu og atvinnulífs

Fríhöfnin skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera konum og körlum kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu. Þessar ráðstafanir skulu miða af því að auka sveigjanleika í skipulagningu á vinnu og vinnutíma. Taka skal tillit til bæði fjölskylduaðstæðna starfsmanna og þarfa fyrirtækisins. Þar með talið að starfsmenn eigi auðveldara að koma til starfa eftir fæðingarorlof, foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna óviðráðanlegra og brýnna fjölskylduaðstæðna.

Starfsemi Fríhafnarinnar krefst þess að starfsmenn sinni verkefnum sínum á ýmsum tímum dagsins og ársins. Með það að leiðarljósi eru vaktir starfsmanna og starfshlutföll skipulögð þannig að síður myndist togstreita á milli einkalífs og vinnu og jafnvægi þar á milli sé eins og best verður á kosið. Markvisst stefnir Fríhöfnin að draga úr yfirvinnu starfsmanna eins og kostur með hagkvæmu skipulagi vakta.

Kynna skal starfsmönnum stefnu fyrirtækisins varðandi sveigjanleika, svo þeir hafi tök á að semja um slíka vinnutilhögun.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Vaktakerfi skal vera fyrirsjáanlegt, svo hægt sé að samhæfa fjölskyldulíf og starf. Upplýsa starfsmenn um sveigjanleika vaktavinnu og sveigjanlegs vinnutíma hvað varðar samhæfingu á fjölskyldu og starf. Framkvæmdastjóri og starfsmannaþjónusta. Kynning f ari fram við upphaf starfs og á innra neti fyrirtækisins, upplýsingar skulu liggja fyrir við upphaf nýs tímabils flugáætlana.
Að tryggja að báðir foreldra nýti þann rétt sem þeir eiga varðandi foreldra- og fæðingarorlofs og leyfi vegna veikinda barna. Kynna starfsfólki og verðandi foreldrum, réttindi og skyldur sem þeir hafa i þessum efnum. Starfsmannaþjónusta, verslunarstjóri, vaktstjórar. Við upphaf starfs og á innra neti fyrirtækisins.
Draga úr yfirvinnu og sjá til þess að hún standi báðum kynjum til boða og taki mið af fjölskylduaðstæðum og starfi. Fyrirkomulag vaktakerfis skal taka mið af því að ekki verði um reglulega yfirvinnu um að ræða hjá starfsmönnum.  Vaktstjóri og verslunarstjóri. Við gerð nýs vaktaplan með tilliti til upphafs nýs tímabils flugáætlana.

 

Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni

Það er stefna Fríhafnarinnar að starfsmenn sýni samstarfsfólki sínu alltaf kurteisi og virðingu í samskiptum. Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni verður undir engum kringumstæðum umborin á vinnustaðnum. Meðvirkni starfsmanna í einelti er fordæmt.

Skilgreining fyrirtækisins á hvað einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni er styðst við reglugerð nr. 1000/2004 en þar segir í 3. gr.:

Einelti: Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að.

Skilgreining fyrirtækisins á hvað kynferðisleg áreitni og kynbundin áreitni er styðst við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 en þar segir í 2. grein, málsgrein 3 og 4:

Kynbundin áreitni: Hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun, sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynbundin áreitni ef það er alvarlegt.

Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi kynferðisleg hegðun sem er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.

Það er á ábyrgð atvinnurekanda að koma í veg fyrir að starfsfólk verði fyrir einelti, kynbundinni og/eða kynferðislegri áreitni á vinnustaðnum. Skyldur stjórnenda eru skýrar og ber þeim að skapa vinnuskilyrði sem bjóða ekki upp á slíkt. Stjórnendum ber einnig skylda til að taka rétt á málum þegar þau koma upp og leita aðstoðar hjá starfsmannaþjónustu og/eða öryggistrúnaðarmönnum. Allar slíkar kvartanir skulu rannsakaðar/kannaðar og starfsfólk stutt eftir bestu getu. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða hagsmunaáreksturs sem kunna að rísa á vinnustaðnum milli stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda skal slíkur ágreiningur ekki leiða til þeirra háttsemi sem lýst er hér að ofan.

Yfirmaður sem kærður er fyrir meint einelti, kynbundinni og eða kynferðislegri áreitni skal samkvæmt lögum nr. 10/2008 gr. 22 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, vera vanhæfur til að taka ákvarðanir um starfskilyrði kæranda á meðan meðferð málsins stendur yfir og skal næsti stjórnandi taka slíkar ákvarðanir.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin hjá Fríhöfninni.

Markvisst er unnið að forvörnum og til er áætlun um viðbrögð ef einelti eða áreitni verður vart.

Fræðsla um áætlun gegn einelti og viðbrögð skulu kynnt starfsfólki. Eineltis áætlun liggi fyrir á innra vef fyrirtækisins þar sem fram kemur skref fyrir skref ferli ef slíkt kemur upp eins og hvert á að snúa sér, hver ber ábyrgð og þess háttar. Starfsmannaþjónusta, verslunarstjóri, lagerstjóri, framkvæmdastjóri. Við upphaf starfs skal áætlunin kynnt starfsmönnum, endurskoða skal áætlun fyrir lok febrúar ár hvert.

 

Eftirfylgni

Jafnréttisáætlun þessa ber að endurskoða á þriggja ára fresti. Mikilvægt er að fylgja eftir verkefnum áætlunarinnar. Árlega skal fara yfir markmið, aðgerðir og niðurstöður verkefna með framkvæmdastjóra og helstu stjórnendum.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Sannreyna hvort jafnréttisáætlun skili tilætluðum árangri. Meta hvort markmið áætlunar séu raunhæf og hvort starfsmenn hafi nýtt sér tækifæri sem áætlun felur í sér. Vinnustaðagreining þar sem tekið er tillit til markmiða og verkefna áætlunarinnar. Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri. Lokið í febrúar annað hvert ár.
Mikilvægt er að jafnréttisáætlun þessi sé í sífelldri þróun eins og önnur stefnumótun hjá fyrirtækinu. Tillaga að gerð nýrra áætlunar með hliðsjón á niðurstöðum vinnustaðagreininga.

Starfsmannaþjónusta og framkvæmdastjóri.

Lokið 3 mánuðum áður en gildistími eldri áætlunar rennur út.