Framkvæmdastjóri
![]() |
Ásta Dís Óladóttir
|
Ásta Dís tók við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar haustið 2010.
Undanfarin ár hefur hún starfað við Háskólann á Bifröst sem dósent í viðskiptafræði, forstöðumaður rannsóknaseturs um alþjóðleg viðskipti og forseti Viðskiptadeildar, en hún var fyrst kvenna til að gegna stöðu deildarforseta í viðskiptadeild háskóla hér á landi. Áður starfaði Ásta meðal annars sem aðjúnkt við Viðskiptadeild Háskóla Íslands ásamt því sem hún gegndi stöðu markaðsstjóra deildarinnar í nokkur ár. Þá hefur hún sinnt stundakennslu í meistaranámi við Háskólann í Reykjavík og starfaði í nokkur ár við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School).
Hún hefur víðtæka reynslu í atvinnulífinu og hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum ásamt því að koma að fjölbreyttum rekstri, þ.m.t. verslunarrekstri. Hún er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og doktorspróf í alþjóðlegum viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Hún hefur á undanförnum árum setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja hér á landi sem og erlendis. Hún er varaformaður stjórnar Byggðastofnunar, var stjórnarformaður SpKef sparisjóðs, Mentor, Norrænna mynda, Heilsuverndarstöðvarinnar, varaformaður stjórnar Frumtaks, fjárfestingasjóðs ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd sjóðsins og stjórnarmaður í Húsasmiðjunni. Ásta Dís situr í samninganefnd um gjaldmiðlamál, var formaður atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum, átti sæti í endurskoðunarnefnd Landsvirkjunar og sat í háskólaráði Háskólans á Bifröst. Ásta Dís hóf Þekkingardaginn, viðburð á vegum Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga árið 2000 er hún gerði rannsókn á þekkingarfyrirtækjum á Íslandi. Ásta gegndi þá stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Þessi viðburður hefur haldist óslitið síðan og fjölmörg fyrirtæki hafa hlotið viðurkenningu sem þekkingarfyrirtæki. Ásta hefur átt sæti í dómnefnd félagsins.
Markaðsstjóri
![]() |
Bjarklind Sigurðardóttir
|
Bjarklind er fædd 1972. Hún lauk prófi af viðskiptabraut frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 1994. Einnig lauk hún námskeiði í auglýsingatækni hjá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum árið 2006. Hún stundar fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og mun ljúka því árið 2012. Bjarklind hóf fyrst störf hjá Fríhöfninni árið 1992. Árið 2000 þegar Fríhöfnin og Flugstöð Leifs Eiríkssonar voru sameinaðar í eitt hlutfélag sem hét Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. var markaðsdeild sett á laggirnar. Bjarklind var ráðinn markaðsfulltrúi og sinnti hún ýmsum markaðsmálum bæði fyrir Fríhöfnina, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og síðar Isavia. Bjarklind var ráðin markaðsstjóri Fríhafnarinnar í mars 2011.
Lagerstjóri
![]() |
Kristinn Bjarnason
|
Kristinn er fæddur árið 1961. Hann hefur lokið stúdentsprófi og sveinsprófi í húsasmíði auk þess sem hann hefur sótt fjölmörg námskeið á vegum fyrirtækisins.
Kristinn hóf störf hjá Fríhöfninni árið 1981 í bókhaldi félagsins. Hann vann um skeið í verslunum Fríhafnarinnar en tók svo við sem lagerstjóri.
Innkaupastjóri
![]() |
Magnús Bjarni Baldursson
|
Magnús Bjarni er fæddur árið 1961, hann tók við starfi innkaupastjóra vorið 2011.
Undanfarin ár hefur hann m.a. starfað við SpKef sparisjóð, sem markaðs- og vöruþróunarstjóri, og þar áður sem framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar-Mindshare. Einnig starfaði Magnús Bjarni sem forstöðumaður markaðsráðgjafar hjá PricewaterhouseCoopers um nokkur ár. Samhliða þessum störfum kenndi hann svo við Háskólann á Bifröst, Viðskiptadeild, og einnig við Háskóla Íslands, Raunvísindadeild.
Magnús hefur annast margvísleg ráðgjafaverkefni fyrir stór sem smá fyrirtæki síðastliðna tvo áratugi, bæði hér á landi sem erlendis. Meðal viðskiptavina má nefna N1, Ölgerðina, Vodafone, Nóa Síríus, Iceland Express, Stöð 2 – 365 Miðla, Morgunblaðið, Sparisjóðina og Borgarleikhúsið svo nokkuð sé nefnt. Magnús er með meistaragráðu í aðferðafræði og greiningum frá York University, í Toronto, Kanada, en þar bjó hann nokkur ár meðan hann var við nám. Þá dvaldi hann talsvert í Kaupmannahöfn árið 2007 enda sinnti hann ráðgjafaverkefnum þar í landi á þeim tíma.
Magnús Bjarni hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja í tengslum við störf sín, en einnig ýmsum ráðum og nefndum á starfstíma sínum. Má þar nefna Fjölmiðlanefnd Sía, Rannsóknanefnd Sía, og sem formaður Sía, Sambands íslenskra auglýsingastofa á árunum 2006-2008. Einnig hefur hann setið í ýmsum öðrum nefndum og vinnuhópum í tengslum við atvinnulífið, m.a. verið í valnefnd á markaðsmanni ársins hjá Ímark undanfarin fimm ár.
Vefstjóri
![]() |
Marín Rós Karlsdóttir
|
Marín er fædd árið 1980. Hún lauk stúdentsprófi árið 1999 frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún hélt þaðan til Bandaríkjanna og stundaði tölvunarfræði í eitt ár í Converse College í Suður Karólínu. Árið 2006 útskrifaðist hún með BA próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands.
Marín hóf störf í verslunum Fríhafnarinnar árið 2000 sem sumarstarfsmaður. Árið 2006 byrjaði hún á skrifstofu Fríhafnarinnar og var síðan ráðin vefstjóri í janúar 2011.
Verslunarstjóri
|
|
Páll Ingi Magnússon
|
Páll tók við starfi verslunarstjóra Fríhafnarinnar í janúar 2008.
Áður bjó hann í Brussel í um 3 ár og starfaði þar í lausamennsku m.a. við þýðingar o.fl. Á meðan hann bjó þar stundaði hann nám við endurmenntun Háskóla Íslands í mannauðstjórnun.
Páll er fæddur árið 1970. Hann hefur víðtæka reynslu af verslunarrekstri. Hann hefur komið að margskonar verslunarstörfum og hefur m.a. unnið við stjórnun verslana hjá Hagkaup, Tæknival/BT og Nanoq. Páll hefur setið fjölda námskeiða sem snúa að verslun, þjónustu og starfsmannamálum. Páll stundar nú námi við Háskólann á Bifröst og lýkur því vorið 2012.
Starfsmannastjóri
![]() |
Sóley Ragnarsdóttir
|
Sóley er fædd árið 1961. Hún lauk námi frá Ungdomshöjskolen ved Ribe í Danmörku árið 1979 og námi í ferðamálafræði frá City and Guilds London Institute árið 1987. Sóley hefur lokið námi í Mannauðsstjórnun frá Endurmenntun HÍ og lýkur námi í viðskiptafræði 2013. Sóley starfaði hjá Landsbanka Íslands frá 1979 til 1981 er hún fluttist til Englands þar sem hún starfaði sem fararstjóri fyrir breska ferðaskrifstofu og framkvæmdarstjóri hjá The Body Firm í Englandi frá 1989 til 1991. Sóley starfaði í starfsmannahaldi Fríhafnarinnar frá 1991 þar til hún tók við starfi framkvæmdastjóra starfsþróunarsviðs FLE í júní 2002. Eftir sameiningu Flugstoða og Keflavíkurflugvallar árið 2010 hefur Sóley gegnt stöðu starfsmannastjóra Keflavíkurflugvallar og Fríhafnarinnar.
Fjármálastjóri
![]() |
Valur Ketilsson
|
Valur er fæddur 1963. Hann lauk stúdentsprófi af uppeldisbraut frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1983 og síðar rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2004. Valur starfaði áður m.a. hjá Verslunarbanka Íslands, Flugleiðum og lengst af hjá Keflavíkurverktökum 1987-2002, þar sem fjármálastjóri hin síðari ár. Hóf störf hjá Flugmálastjórninni Keflavíkurflugvelli í árslok 2002 og starfaði þar sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs 2006-2009 en starfar nú sem fjármálastjóri Isavia ohf. og Fríhafnarinnar ehf.






