Stjórnarmenn

Þórólfur Árnason


Starfsheiti: Stjórnarformaður

Þórólfur Árnason er stjórnarformaður Fríhafnarinnar frá maí 2011.
Hann er fæddur árið 1957 í Reykjavík, ólst upp á Snæfellsnesi til 15 ára aldurs og stundaði grunnskólanám við Laugargerðisskóla, lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1975, B.Sc. prófi í Vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1979 og M.Sc. prófi í Iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1981.
Þórólfur hefur starfað sem ráðgefandi verkfræðingur, framleiðslustjóri hjá Nesco, markaðsstjóri hjá Marel og Olíufélaginu, forstjóri Tals, borgarstjóri í Reykjavík, forstjóri Icelandic Group og Skýrr. Árið 2010 leiddi hann sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. í Isavia ohf. þar sem hann er nú stjórnarformaður.
Þórólfur hefur m.a. verið stjórnarmaður í Marel, Lífeyrissjóði verkfræðinga, Landssamtökum lífeyrissjóða, Leikfélagi Reykjavíkur, Hlutverkasetri, Auðlind-Náttúrusjóði og Innovit.


Ólafur Thordersen


Starfsheiti: Stjórnarmaður

Ólafur er fæddur 1966. Hann hefur í gegnum tíðina setið ýmis námskeið tengd stjórnun og reksti. Ólafur starfaði í Lögreglunni í Keflavík og 20 ár sem starfsmaður og framkvæmdarstjóri Njarðtaks. Hann var stjórnarformaður Íslenska Gámafélagsins og Vélamiðstöðvarinnar. Ólafur hefur verið bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í 12 ár og einnig setið í bæjarráði Reykjanesbæjar. Ólafur hefur setið í ýmsum nefndum á vegum Reykjanesbæjar s.s. stjórn Brunavarna Suðurnesja í 8 ár, Stjórn HS veitur og HS orku, Íþrótta og tómstundaráði í 8 ár og einnig í Íþróttaráði Njarðvíkur. Hann hefur einnig gegnt ýmsum félagastöfum fyrir íþróttahreyfingu og félagasamtök s.s. formaður íþróttabandalags Reykjanesbæjar, setið í stjórn knattspyrnu- og handknattleiksdeildar Njarðvíkur einnig verið formaður Lionsklúbbsins í Njarðvík.


Arnbjörg Sveinsdóttir


Starfsheiti: Stjórnarmaður

Arnbjörg er fædd 1956 og ólst upp á Seyðisfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1976. Hún stundaði laganám við HÍ 1980-1982. Hún stundar nú MBA-nám við Háskóla Íslands.
Hún hefur starfað við afgreiðslu Smyrils og Eimskips, verið kennari, fulltrúi í laundeild Ríkisspítalanna og starfaði við verslunar- og skrifstofustörf. Hún var skrifstofu- og fjármálastjóri Fiskiðjunnar Dvergasteins hf. 1990-1995. Hún var alþingismaður Austurlandskjördæmis 1995-2003 og alþingismaður Norðausturkjördæmis 2004-2009 fyrir Sjálfstæðisflokk. Hún var formaður þingflokks Sjálfstæðismanna 2005-2009. Hún var í Íslandsdeild Norðurlandaráðs og Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA.
Hún sat í bæjarstjórn Seyðisfjarðar 1986-1998 og frá 2010 og er nú forseti hennar. Hún situr í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi. Hún hefur setið í fjölda nefnda og ráða.
Hún sat stjórn Flugstoða ohf. 2007-2010, áður í undirbúningsstjórn og í stjórn Isavia ohf. frá 2010.


Bergur Sigurðsson


Starfsheiti: Stjórnarmaður

Bergur er fæddur árið 1971. Hann er smiður og stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er með Cand. Scient gráðu í umhverfisefnafræði frá Háskólanum í Osló. Bergur starfaði sem heilbrigðisfulltrúi á Suðurnesjum í 6 ár og var um árabil formaður Félags heilbrigðis og umhverfisfulltrúa. Hann hefur tekið virkan þátt í umhverfis- og náttúruverndarmálum sem stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Íslands og framkvæmdastjóri Landverndar til þriggja ára. Bergur starfar nú sem framkvæmdarstjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.


Jónína Holm


Starfsheiti: Stjórnarmaður

Jónína er fædd 1961, býr og starfar í Garðinum. Grunnskólakennari að mennt og gegnir stöðu fagstjóra sérkennslu í Gerðaskóla. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2010 tók hún sæti í bæjarstjórn fyrir N listann sem er þverpólitískur listi og í ágúst sama ár tók hún sæti í bæjarráði. Jónína situr í tveimur nefndum á vegum Sveitarfélagsins Garðs, velferðar og fjölskyldunefnd og landakaupanefnd. Reglulega endurmenntar hún sig og helstu námskeiðin undanfarið eru Konur og stjórnun frá HÍ, siðfræði, fagmennska og traust á vegum Endurmenntunar HÍ og hún stefnir á að taka námskeið í sérkennslufræðum við HÍ. Jónína var fyrsti formaður Norræna félagsins í Garði. Ritari Kvenfélagsins Gefnar í sex ár og er nú í varastjórn sem ritari.



Til baka