Lýsi
kr.
Óþægindi eða verkir frá liðum geta dregið úr hreyfigetu og almennum gæðum daglegs lífs þeirra sem þjást af þeim. Omega 3 Mobility er samansett úr efnum sem talin eru hafa jákvæð áhrif á liðina og geta viðhaldið heilbrigði þeirra.
Hyal-Joint® (hyaluronsýra):
Í liðamótum er að finna seigfljótandi vökva sem nefnist liðvökvi. Hlutverk hans er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum. Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er einnig að finna í brjóski.
Kondróitínsúlfat:
Kondróitínsúlfat (úr fiski) er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski. Virkni kondróitíns er talin felast í því að hemja niðurbrotshvata sem brjóta niður brjósk í liðum. Það er einnig talið hamla bólgumyndun og vinna gegn slitgigt. Í Omega 3 Mobility er einnig C-vítamín sem hefur hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni. Kollagen er prótein sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.
Omega-3:
Talið er að omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA geti dregið úr stirðleika á morgnana og verkjum og gert liðina mýkri og sveigjanlegri.
Omega 3 Mobility inniheldur ekki A- og D-vítamín og því er óhætt að taka vöruna með lýsi.
30+60 pc