Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

ForsíðaSnyrtivörurKremBioeffect EGF Essence
Main product image for Bioeffect EGF Essence

BIOEFFECT

Bioeffect EGF Essence

kr.

BIOEFFECT EGF ESSENCE er léttur og nærandi vökvi sem inniheldur hið einstaka EGF (Epidermal Growth Factor) sem framleitt er í byggi. EGF frumuvakinn stuðlar að endurnýjun húðfrumna, eykur framleiðslu á kollageni og elastíni og hægir þannig á öldrunarferlinu auk þess að örva rakamyndun og þykkja húðlagið. Jafnvel þó það sé stundum kallað töfravatn, er Essence hvorki andlitsvatn né serum heldur sambland af hvoru tveggja.

 

Hvað gerir varan?

BIOEFFECT EGF ESSENCE smýgur hratt inn í húðina og er uppfullt af virkum efnum sem draga úr hrörnun húðarinnar. Það veitir nauðsynlegan raka og hentar því best á hreina húð fyrir notkun á BIOEFFECT serum og/eða rakakremi, til að auka EGF áhrif þeirra.

 

Markhópur

Hentar vel með BIOEFFECT serum, sérstaklega EGF Serum og EGF Day Serum þar sem vökvinn eykur virknina ásamt því að auka rakamyndun í húðinni. Fullkomið fyrir alla þá sem kynnst hafa töfrum BIOEFFECT og vilja halda tryggð sinni áfram við húðvörurnar.

 

NOTKUN

Hellið lófafylli af essence í hendina, um það bil 2-4 skvettur, og þrýstið mjúklega inn í húð háls og andlits. Notið BIOEFFECT serum eða rakakrem að eigin vali á eftir.

Magn

100 ml

Vara fáanleg í:

Einungis hægt að setja í körfu í brottfararverslun

Svipaðar vörur