Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

Störf í boði

Fríhöfnin leggur lykiláherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og eiganda með því að hafa réttar vörur á réttum stað og stuðla að góðri upplifun fyrir farþega Keflavíkurflugvallar. Starfsfólk Fríhafnarinnar er einn af lykilþáttum í góðu gengi félagsins og við leggjum okkur því fram við að skapa eftirsóknarverðan vinnustað með sterka innviði.

Við erum alltaf að leita af jákvæðu og þjónustuglöðum einstaklingum til að taka þátt í stemningunni með okkur. Ef þú ert 19 ára eða eldri þá viljum við heyra frá þér!

Störf í boði

Fríhöfnin er dótturfyrirtæki Isavia ohf. og annast þrjár verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Félagið er stærsta verslunarfyrirtæki í flugstöðinni með um 210 starfsmenn. Fríhöfnin er framsækið fyrirtæki í síbreytilegum ferðaheimi þar sem markmiðið er að bjóða upp á gæðavörur á góðu verði í samkeppni við verslanir á erlendum flugvöllum. 

Meðferð starfsumsókna hjá Fríhöfninni 

Allar umsóknir um störf hjá Fríhöfninni skulu fara í gegnum ráðningarvef fyrirtækisins. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir um störf sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar búið er að ráða í starfið. Umsóknarferlið tekur að jafnaði 4-8 vikur frá því að laust starf er auglýst. Umsóknir eru geymdar í 6 mánuði. Vinsamlegast látið okkur vita ef þú vilt að gögnum um þig sé eytt fyrir þann tíma. Umsækjandi þarf að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar. 

Kæri umsækjandi!

Ef þið lendið í vandamálum með að sækja um starf hjá Fríhöfninni þá getið þið sent póst á radningar@dutyfree.is og við munum reyna að leysa fljótt úr málunum.