Karfa
Afslættir
Samtals

Við erum að sækja körfuna þína...

Stjórn

Valdimar Halldórsson
Valdimar Halldórsson
Stjórnarformaður

Valdimar Halldórsson, fæddur 1973. Stjórnarmaður frá 2018, BA í hagfræði og MSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2018 hefur Valdimar verið framkvæmdastjóri og einn eigenda Norðursiglingar hf á Húsavík. Hann var framkvæmdastjóri Hvalasafnsins á Húsavík 2016-2018. Hann var ráðgjafi hjá H.F. Verðbréf 2013-2016, aðstoðarmaður atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013, sérfræðingur hjá Marko Partners 2011-2012, sérfræðingur hjá IFS Greiningu 2008-11, sérfræðingur í sjávarútvegsteymi Íslandsbanka 2004-2008 og hjá Þjóðhagsstofnun/Hagstofu Íslands, þjóðhagsreikningum 2000-2004. Valdimar er stjórnarmaður í Stapa lífeyrissjóði, í Sjóböðunum á Húsavík ehf (Geosea), hjá Willa Franz ehf, varamaður í stjórn hjá Ístex hf í Mosfellsbæ og stjórnarmaður í nokkrum dótturfélögum sem tengjast Norðursiglingu hf. Valdimar situr í endurskoðunarnefnd Isavia. Valdimar var kosinn í stjórn Fríhafnarinnar á aðalfundi 2020 og stjórnarformaður á aðalfundi 2021.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
Stjórnarmaður

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, fædd 1978, stjórnarmaður frá 2018, stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Frá árinu 2015 hefur Nanna verið fjárfestingastjóri Hafbliks fjárfestingafélags. Hún var ráðgjafi erlendra verslanakeðja 2013-2014 vegna starfsemi hér á landi, eigandi Náttúrulækningabúðarinnar og tengdra félaga í verslun og heildsölu 2008-2013 og starfaði hjá Eimskipafélagi Íslands frá 1998-2008, m.a. í fjárstýringadeild og sem sölustjóri í sjó- og flugfraktdeild. Nanna situr m.a. í stjórnum Ilta Investments, Ilta PE og Náttúrulækningabúðarinnar. Nanna var kosin í stjórn Fríhafnarinnar á aðalfundi 2020.

Hrólfur Ölvisson
Hrólfur Ölvisson
Stjórnarmaður

Hrólfur Ölvisson stundaði nám í stjórnmála og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Frá árinu 2016 hefur Hrólfur starfað sem framkvæmdastjóri Jarðefnaiðnaðar ehf. ásamt því að sitja í stjórn félagsins. Hann situr einnig meðal annars í stjórn Sementsverksmiðjunnar ehf. og Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. ásamt því að gegna formennsku stjórnar hjá Bæ hf. Hrólfur hefur gengt fjölmörgum stjórnunarstöðum áður en meðal annars starfaði hann sem framkvæmdastjóri dagblaðsins Tímans 1988- 1993 og sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins 2010-2016. Hann hefur einnig setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum árin en meðal annars sat hann í stjórn Bankaráðs Búnaðarbankans 1998-2001, var formaður stjórnar Brunamálastofnunar 1997-2001, í Innkauparáði Reykjavíkurborgar 2003-2005 og formaður Vinnumálastofnunar 1998-2007. Hrólfur var kosinn í stjórn Fríhafnarinnar á aðalfundi 2023.